Nauðsyn þess að vera bjartsýnn og jákvæður...

 

 

 

Nú þegar innviðir þjóðfélagsins hafa verið að hrynja er mikilvægt að hugsa til þess hve vel við stöndum að mörgu leyti.  Reyna að hugsa jákvætt um framtíðina.  Óvissan nagar marga og því er mikilvægt að standa saman. Sýna vináttu og hlýhug. Hjálapst að.  Öll él birtir upp um síðir, en það getur tekið tíma. Ljósið er þó framundan.   


Við eigum gott land með miklum auðlindum sem bíða þess að verða nýttar.  Auðvitað verður að stíga varlega til jarðar og gæta þess að skemma ekki náttúruverðmæti, en jafnframt er nauðsynlegt að reyna eftir fremsta megni að setja af stað arðbær verkefni til að reyna að fá hjól atvinnulífsins til að snúast. Nú verðum við öll að líta í kringum okkur og leggja höfuðið í bleyti. Verðum að vera samtaka. Margt smátt gerir eitt stórt. Saman getum við komist yfir erfiðleikana, en við megum alls ekki missa móðinn.

Menntun Íslendinga er með því besta sem gerist í heiminum. Íslendingar eru áræðnir og duglegir. Hugmyndaríkir og skynsamir. Hvernig væri að reyna að safna saman hugmyndum um hvað gera má til að flýta fyrir batanum?

Bloggarar eru með gott tæki til að skiptast á hugmyndum og koma þeim á framfæri. Notum hugmyndaflugið. Ræðum hugmyndir og úrræði.  Munum að orð eru til alls fyrst.

Framundan er álver á Reykjanesi og jafnvel annað á Bakka. Til að knýja þau þarf að virkja jarðvarma og vatnsföll. Nauðsynlegt er að sjá til þess að Íslendingar njóti forgangs við framkvæmdir. Ekki veitir af. Hver veit nema þessar tvær framkvæmdir geti hjálpað verulega til að komast yfir erfiðasta hjallann.

Örugglega er hægt að koma auga á margt annað sem gera mætti, þó það sé ekki eins stórt í sniðum. Margt smátt gerir eitt stórt. Stundum mjög stórt.

 

Bjartsýni:

Frábært efni í Spegli RÚV:

Viðtal  við skynsama og bjartsýna menn. Smella hér til að hlusta.

Jón G. Hauksson ritsjóri Frjálsrar verslunar: Veröldin eins og hún var nýlega, og ráðleggingar um hvernig við endurreisum viðskiptalífið og komumst út úr kreppunni. Lífið heldur áfram...

Gylfi Magnússon  dósent í hagfræði við HÍ:  Jafnvægi á gjaldeyrismarkaði gæti komist á innan nokkurra daga og lífið í svipað horf eftir fáein ár. Líf í heilbrigðara hagkerfi þar sem fáeinir auðmenn ráða ekki yfir stórum hluta efnahagslífsins...

 

Sjá einnig gott viðtal við Benedikt Jóhannesson og Gylfa Magnússon í Kastljósinu 9. okt. hér.

 

Sjá:

Vefur BBC News:
What happened to Iceland?
Jon Danielsson
Economist, Financial Markets Group, London School of Economics 

 

Sjá grein Ágústs Valfells á Silfri Egils:  Viðreisn

 

Verum bjartsýn og dugleg. Það skiptir mestu máli. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Íslendingar hafa aldrei sýnt samstöðu, vináttu og hlýhug. Dettur nokkur í hug að það breytist? Það sem gerist er að smælingjarnir troðast í skítinn eins og fyrri daginn en þeir sem betur mega sín hugsa bara um að bjarga sjálfum sér. Þannig verður þetta. Ekki svartsýni heldur raunsæi.  

Sigurður Þór Guðjónsson, 9.10.2008 kl. 18:31

2 Smámynd: Einar Indriðason

Þetta er jákvætt innlitskvitt.  En innihaldslítið að öðru leyti :-)

Einar Indriðason, 9.10.2008 kl. 21:00

3 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Spurning, hvort fáist erlent vinnuafl til að reisa nýjar virkjanir og verksmiðjur!  Íslendingar hafa alla burði til að vinna sig útúr þessu en þá þarf líka að hreinsa ALMENNILEGA til í stjórnkerfinu og almenningur að taka málin í sínar hendur og taka ábyrgð á sjálfum sér og sínu landi.

Legg til, að opnuð verði síða á Netinu, þar sem fólk getur komið á framfæri hugmyndum sínum um nýsköpun og allt það, er orðið getur íslenskri þjóð til bjargar.  Gæti heitið t.d. Nýtt Ísland smb. Nýr Glitnir...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 10.10.2008 kl. 08:58

4 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Sæll Ásgeir.

Ég tek heilshugar undir hugmynd þína um vefsíðu á netinu með hugmyndabanka. Hann þarf auðvitað að vera eitthvað ritstýrður, en ekki um of. Fólk þarf að vera ófeimið við að kynna sínar hugmyndir. Af einni hugmynd leiðir oft önnur, sérstaklega ef það nær að myndast eins konar "brain-storm" áhugi.

Ágúst H Bjarnason, 10.10.2008 kl. 09:18

5 Smámynd: Ágúst H Bjarnason

Ég vil benda á grein eftir frænda minn Ársæl Valfells sem lesa má á Silfri Egils. Smella hér.

Í þessari ágætu grein segir Ársæll m.a:

"Nú er hvorki tími örvæntingar, né heldur tími bullandi tækifæra. Nú er vitjunartími okkar. Nú er sá tími sem að við getum staðið saman sem þjóð, horfst í augu við þann vanda sem að okkur steðjar og ráðið fram úr honum. Til þessa þarf að gera margt...

...

Nú er lag að ráðast í ýmsar gagnlegar framkvæmdir og breytingar sem að hafa setið á hakanum. Framkvæmdir sem þóttu ekki álitlegar þegar að menn sáu mesta hagnaðarvon í því að taka stórt lán, og veðja á ótakmarkaðan vöxt. Við þurfum að endurskoða stjórnkerfið; frelsa ráðamenn undan ægivaldi flokksagans og hagsmunatengslanna til þess að þeir geti unnið landi sínu gagn.

Nú er lag til þess að gera það sem mest er um vert; að endurheimta orðstír Íslands þannig að við getum borið höfuð hátt, hvert um heim sem við förum."

Ágúst H Bjarnason, 10.10.2008 kl. 09:25

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

Við eigum að taka utan um hvert annað. Núna er tími til þess að standa saman. Fjölskyldan og vinir, eru það dýrmætasta sem hver á.

peningar koma og fara. við verðum að horfa fram á veginn.

Fannar frá Rifi, 10.10.2008 kl. 15:32

7 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Auðvitað er fjölskyldan dýrmæt.....en við borðum ekki hvert annað.........það þarf eitthvað meira til að koma en ástin.....

Rúna Guðfinnsdóttir, 10.10.2008 kl. 19:41

8 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Samstaða er algjört must sem og það að nota nú tækifærið og HREINSA til. Moka burtu öllu því sem við viljum ekki hafa í okkar samfélagi og umbreyta bæði hugsunarhætti og framgöngu pólitíkusa og annarra embættismanna. Byrja upp á nýtt á grunni sem hefur manngildi og önnur góð gildi sem grunn.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 17.10.2008 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 762140

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband