Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2012

Reynsla Grikkja af Kínverjum í höfninni í Píreus...

 

 

 

 

 

 

Það er fróðlegt að skoða myndbandið hér fyrir ofan sem ættað er frá sjónvarpsstöð Evrópuþingsins og má einnig sjá hér á vefsíðu European Parliament/EuroparITV.  Þar er fjallað um reynslu Grikkja af umsvifum Kínverja í höfninni í Píreus. Myndbandið er með enskum texta.

 

Það er einnig fróðlegt að lesa þessa grein um sama mál: In Greek Port, Storm Brews Over Chinese-Run Labor þar sem meðal annars er fjallað um slæm kjör kínverskra starfsmanna og aðbúnað þeirra.

 

Der Spiegel: Good friends are here to help: Chinese Investors Take Advantage of Greek Crisis.       Um höfnina í Píreus: "The conditions here are like something from the darkest Middle Ages"

 

Er þetta það sem við viljum?

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Vilja rannsókn á tengslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný byggingareglugerð hækkar í raun hitunarkostnað verulega...

 

 

Sigurður Ingólfsson framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Hannarr skrifaði fróðlega grein í Morgunblaðið fimmtudaginn 19 júlí s.l.  Hann kemst að þeirri niðurstöðu, að í stað þess að lækka hitunarkostnað húsnæðis, þá kemur kostnaðurinn í raun með að hækka verulega, sé tekið tillit til þess hve miklu dýrara húsnæðið verður og fjármagnskostnaður hærri.  Niðustaða hans er sú að verulega auknar kröfur um einangrun húsa eigi ekki við í íslensku umhverfi og það séu mistök að þessar auknu kröfur hafi verið settar í byggingareglugerð.

Útreikningar Sigurðar miðast við hitun á húsi með heitu vatni, og gilda því ekki óbreyttir um hús á þeim svæðum þar sem rafmagn er notað til hitunar. Þau eru þó í  minnihluta sem betur fer.  Þessi ákvæði um einangrun gætu átt við í löndum þar sem hús eru hituð með raforku og þar sem orkan er mun dýrari er hér á landi. Líklega er þetta bara "copy-paste" úr erlendum reglugerðum.

Ég veit til þess að fleiri tæknimenn hafa komist að svipaðri niðurstöðu og er því full ástæða til að vekja athygli á þessu.

Gefum Sigurði orðið:

sigurdur_ingolfsson.jpg1 milljarður á ári, í eigu húsbyggjenda, út um gluggann.

Vegna aðkomu minnar að ýmsum útreikningum sem snerta byggingarframkvæmdir finnst mér rétt að vekja athygli á grein 13.3.2 í nýrri byggingarreglugerð, en þar er fjallað um "hámark U-gildis - nýrra mannvirkja og viðbygginga". Þær kröfur sem koma fram í þessari grein, kalla meðal annars á aukna einangrun útveggja, þaka og gólfa í nýbyggingum, um u.þ.b. 50 mm.

Hvað þýðir þetta í auknum kostnaði fyrir húsbyggjendur?

Ef húsbyggjandi vill byggja sér einbýlishús getur hann reiknað með að útveggjaflötur sé álíka og brúttóflötur hússins og ef húsið er á einni hæð þá er gólf- og þakflötur álíka stór og brúttóflötur hússins, hvor fyrir sig. Aukakostnaður við að byggja 200 m² hús á einni hæð vegna þessara auknu einangrunar er um 1 milljón króna.

En þetta hefur fleira í för með sér

Húsið hefur annaðhvort bólgnað út um þessa 5 cm í allar áttir, eða innra rými þess skroppið saman sem þessu nemur. Til að halda sama nettófleti hússins þarf þannig að stækka það um uþ.b. 3 m², til að halda sama rými innanhúss. Kostnaður vegna þessarar stækkunar er u.þ.b. 1 milljón króna og eykst því kostnaður við húsið um alls 2 milljónir króna til að fá sama nýtanlega rýmið, eða sem svarar til rúmlega 3% af byggingarkostnaði.

Og hvað sparar þetta húsbyggjandanum?

Reiknað er með að hús sem hafa verið byggð samkvæmt síðustu byggingarreglugerð noti um 0,8-1,0 rúmmetra af heitu vatni á ári til upphitunar á hvern rúmmetra húss (ekki neysluvatn) og þar af fari umtalsverður hluti í að hita lotfskipti hússins. 200 fermetra hús er um 660 rúmmetrar og sé reiknað með verði Orkuveitunnar á heitu vatni, sem er í dag um 125 kr/m3 (OR 119,91), er kostnaður við upphitun hússins fyrir breytingu u.þ.b. 83.000 kr. á ári. Aukin einangrun skilar húsbyggjandanum á bilinu 15-20% sparnaði, eftir því hversu mikið tapast af hita hússins með loftskiptum. Það gerir 12-17.000 í krónur í sparnað á ári.

Hafi húsbyggjandinn fengið þennan viðbótarpening sem aukin einangrun kostar, að láni, þarf hann að greiða vexti af honum sem eru 4,1% auk verðtryggingar í dag, eða um 82.000 kr. á ári, og lánið stendur þá áfram í sömu upphæð, verðtryggðri. Sé litið á þennan vaxtakostnað sem hluta af upphitunarkostanði hússins og dreginn frá sparnaður í upphitun þess vegna aukinnar einangrunar hækkar þessi aukna krafa um einangrun upphitunarkostnað þessa húsbyggjanda um allt að helming, í stað þess að spara honum pening. Hér virðist eitthvað hafa gleymst í útreikningunum, eða að þeir hafi e.t.v. aldrei verið gerðir.

Útkoman er sú sama í öðrum gerðum af húsum, að öðru leyti en því að tölur þar eru oftast lægri, bæði kostnaður og sparnaður, en hlutfallið er það sama og því um kostnað að ræða en ekki sparnað í öllum tilvikum. Húsbyggjandinn greiðir þennan aukakostnað og fær hann aldrei til baka í lækkuðum upphitunarkostnaði. Því má líta á þetta sem skatt á húsbyggjandann.

Skattur þessi er samtals um það bil 1 milljarður króna á ári á landinu öllu sé miðað við eðlilegan fjölda nýbygginga á hverjum tíma. Fyrir þann pening mætti t.d. byggja 16 einbýlishús af ofangreindri stærð eða 43 íbúðir sem væru um 100 m² að stærð.

Hver tekur svona ákvarðanir og hversu löglegar eru þær?

Hverjir taka svona ákvaðranir og á hvaða forsendum? Gleymdist að reikna dæmið til enda? Er e.t.v. verið að taka upp erlenda staðla án skoðunar á áhrifum þeirra hér? Er eðlilegt og heimilt að leggja þennan skatt á húsbyggjendur? Er of seint að leiðrétta þessa reglugerð?

Hér virðast vera gerðar meiri kröfur í reglugerð en er að finna í mannvirkjalögum nr. 160/2010, en þar segir um hitaeinangrun húsa:

"6. Orkusparnaður og hitaeinangrun.

Hita-, kæli- og loftræsingarkerfi bygginga og mannvirkja skulu hönnuð og byggð á þann hátt að nauðsynleg orkunotkun sé sem minnst með tilliti til veðurfars á staðnum en án þess að til óþæginda sé fyrir íbúana."

Það skal tekið fram að þessi niðurstaða var kynnt fyrir Mannvirkjastofnun, Orkustofnun og Orkuveitu Reykjavíkur fyrir nokkru og hafa þessir aðilar ekki gert athugasemdir við þessa niðurstöðu.


>> Gleymdist að reikna dæmið til enda? Er verið að taka upp erlenda staðla án skoðunar á áhrifum þeirra hér? Er of seint að leiðrétta reglugerðina?

--- --- ---

 

Nýju byggingareglugerðina má finna hér.   Umrædd grein er á blaðsíðu 156.  Því miður er ekkert efisyfirlit í þessum 178 blaðsíðna texta og því erfitt að lesa hann. Höfundum reglugerðarinnar mætti benda vinsamlegast á að í nútíma ritvinnsluforritum eins og Word er mjög auðvelt að vera með efnisyfirlit og atriðaskrá.

 

 

 


China Town á Grímsstöðum...

 

2306189245_eda298ca1c.jpg

 

Í byrjun maí s.l. var hér varpað fram 25 spurningum vegna fyrirhugaðrar langtímaleigu Kínverja á 30.000 hekturum lands.  Ekki hafa nein svör borist.

Sjá pistilinn Spurningar sem fá verður svar við áður en rætt verður um langtímaleigu á Grímsstöðum á Fjöllum...

Nú er þó ljóst að þarna mun rísa kínverskt þorp með 100 glæsihýsum fyrir auðmenn, með öllu sem slíku tilheyrir,  þjónustuliði (væntanlega kínversku) o.s.frv.  Þarna mun einnig verða lagður flugvöllur, fyrir "svifflug" samkvæmt fréttinni.

Er þetta virkilega það sem við viljum?

   Lítilla sanda
   lítilla sæva
   lítil eru geð guma. 

-

Í Heimskringlu er frásögn af því að Ólafur Haraldsson Noregskonungur sendi hirðmann sinn, Þórarin Nefjólfsson, til að biðja Norðlendinga að gefa sér Grímsey. En Einar Eyjólfsson Þveræingur kom í veg fyrir það með ræðu sem hefur lengi verið í minnum höfð:


„En um Grimsey er þat at ræða, ef þaðan er engi hlutr flutr, sá er til matfanga er, þá má þar fæða her manns, ok ef þar er útlendr herr, ok fari þeir með langskipum þaðan, þá ætla ek mörgum kotbúöndunum muni þykkja verða þröngt fyrir durum.“

„Ok þegar er Einar hafði þetta mælt ok innt allan útveg þenna, þá var öll alþýða snúin með einu samþykki, at þetta skyldi eigi fást. Sá Þórarinn þá erindislok sín um þetta mál.“


Nú vantar okkur sárlega Einar Þveræing...

 

 

 

Er öllum virkilega sama?    Einnig náttúruverndarfólki?  Eru menn kannski með einhverja dollaraglýju í augunum?

 

Bloomberg 17. júlí:
Chinese Billionaire Huang To Revive Iceland Deal After Rejection


 

 


mbl.is Huang segir samkomulag í höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leitin að Guðseindinni ber árangur...

 

higgs-2.jpg


Frétt Morgunblaðsins í dag hefst á þessum orðum:

"Bandarískir eðlisfræðingar segjast hafa fundið sterkar vísbendingar um tilvist svonefndrar Higgs-bóseindar, sem gefi öreindunum massa. En hún er einnig kölluð Guðseindin...".

 

Það er því tilefni til að rifja upp gamlan pistil frá árinu 2008:

Miklahvells-vélin og leitin að Guðseindinni hjá CERN

 

 

 


mbl.is Vísbendingar um tilvist Guðseindarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggið

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverð

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverðið í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 74
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri færslur

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband