Færsluflokkur: Spaugilegt
Sunnudagur, 13. mars 2016
Furðulegt ferðalag flöskuskeyta...
Flöskuskeytin tvö hafa undanfarnar vikur ferðast suður meðfram ísjaðrinum við austurströnd Grænlands í miklum vindi og sjógangi. Fyrir sunnan Grænland snérist þeim hugur og tóku stefnuna til austurs. Þau hafa staðist þessa þolraun og senda enn skeyti um gervihnetti með nákvæmum staðsetningarupplýsingum. Þau hafa nú ferðast rúmlega um 3.400 kílómetra síðan þau voru sjósett fyrir rúmum tveim mánuðum fyrir sunnan Reykjanesvita. Hvert munu þau nú halda? Veður er síbreytilegt og erfitt að spá, en það gerir ferðalagið æsispennandi. Það er engu líkara en þau hafi heimþrá og stefni aftur til Íslands. Hægt er að nota músina til að færa kortið til og skruna inn á flöskuskeytin til að sjá þau betur. Með því að smella á merkið sem líkist blöðru má kalla fram upplýsingar um nákvæma stöðu flöskunnar og fleira.
Spennan vex með degi hverjum... Skoðið nánar á þessum vefsíðum: Vefsíða Ævars vísindamanns: http://krakkaruv.is/floskuskeyti
Upplýsingasíða Verkís:
Bloggsíða með fjölda mynda og kortum: agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/2163995
|
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 15. febrúar 2016
Flöskuskeyti Verkís og Ævars vísindamanns er nú fyrir sunnan Grænland...
Flöskuskeytin tvö hafa undanfarnar vikur ferðast suður meðfram ísjaðrinum við austurströnd Grælands í miklum vindi og sjógangi. Þau hafa þó staðist þessa þolraun og senda enn skeyti um gervihnetti með nákvæmum staðsetningarupplýsingum þar sem þau eru nú stödd fyrir sunnan Hvarf (sem á dönsku heitir Kap Farvel og á grænlensku Uummannarsuaq). Þau hafa nú ferðast rúmlega 2.000 kílómetra síðan þau voru sjósett fyrir rúmum mánuði fyrir sunnan Reykjanesvita. Hvert munu þau nú halda? Veður er síbreytilegt og erfitt að spá, en það gerir ferðalagið æsispennandi :-) Hægt er að nota músina til að færa kortið til og skruna inn á flöskuskeytin til að sjá þau betur. Með því að smella á merkið sem líkist blöðru má kalla fram upplýsingar um nákvæma stöðu flöskunnar of fleira.
Spennan vex með degi hverjum... Skoðið nánar á þessum vefsíðum: Upplýsingasíða Verkís:
Bloggsíða með myndum og kortum: agbjarn.blog.is/blog/agbjarn/entry/2163995
|
Spaugilegt | Breytt 16.2.2016 kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 1. apríl 2015
Astro-naut og Nautagil...
Skemmtileg mynd er á vefsíðunni Astronomical Picture of the Day hjá NASA í dag. Vísindamenn hafa velt fyrir sér hvernig menn munu fara að því að lifa af búsetu á tunglinu. Auðvitað munu þeir þurfa mjólkurvörur svo sem skyr, nýmjólk og rjóma. Landnámsmennirnir urðu að flytja með sér allan bústofninn til Íslands á sínum tíma, og eins verður með geimfara framtíðarinnar. Vísindamenn hafa þó áttað sig á því vandamáli að lítið er um loft á Tunglinu, minna loft en í Þingeyjasýslu sumarið 1969 þar sem tunglfarar voru að kynna sér aðstæður sem líkjast þeim sem eru á Mánanum. Hjá Þingeyingum var nóg loft.
Jarðfræðingarnir Sigurður Þórarinsson og Guðmundur Sigvaldason gáfu litlu gili á hálendinu fyrir norðan nafnið Nautagil til heiðurs geimförunum, sem kallast astronaut á enskri tungu. Þeir hafa verið mjög framsýnir, því nú hafa vísindamenn loks fundið lausn á vandamálinu, eins og APOD myndin ber með sér.
|
Sverrir Pálsson tók þessa mynd sem fengin var að láni hjá Vísi af Guðmundi Sigvaldasyni, Sigurði Þórarinssyni
og astronautunum árið 1969.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 5. desember 2014
Dúndur jólastress...!
Starfsmenn verkfræðistofunnar Verkís taka þátt í Áheitasöfnun Geðveikra Jóla með frábæru jólalagi í ár. Hægt er að sjá hér þeirra framlag og einnig kjósa lagið þeirra og styrkja gott málefni. Heimsækið vefsíðu Einstakra barna, en einstök börn þjást af erfiðum og sjaldgæfum sjúkdómum: www.einstokborn.is Hægt er að heita á lag VERKÍS inni á www.gedveikjol.is eða með því að senda sms til að gefa 1.000 5.000 kr. Áheitin renna til stuðningsfélags Einstakra barna. Sendið textann 1007 í númerið 900 9501 til að gefa 1.000 kr. Sendið textann 1007 í númerið 900 9503 til að gefa 3.000 kr. Sendið textann 1007 í númerið 900 9505 til að gefa 5.000 kr |
Syngið með:
Dúndur jólastress
JÓL
Æ þarf að gera allt þó bráðum komi jól?
Við getum líka tekið því með ró!
Skrifa jólakortin, skreytog pakka inn.
Eða má, sleppa því í þetta sinn?
Baka, versla inn og þrífa hátt og lágt?
Er það nú ekki full mikið í lagt?
Því þó að allt sé eftir nú,
eigum ég og þú, saman geðveik jól.
JÓL JÓL
Finnst þér, enn að, allt verð´að vera spik & span?
Nei ég er ekki sáputusku-fan.
Ef mútta kæm´ í heimsókn og allt í drasli hér.
Hún kennir mér um, það allt hvort eð er.
Allt sem hún sér og miður fer
Ég er að missa´ða, með jólakvíða hnút.
Æ elsku besta ekki fríka út.
Því þó að allt sé eftir nú,
eigum ég og þú, saman geðveik jól.
Við dembum okkur kát og hress
JÓL
Í dúndur jólastress
JÓL
Þó að allt sé eftir nú,
eigum ég og þú, saman geðveik jól.
Svo þramm, þramm, þramma ég, allt Þorláksmessukvöld,
þeytist um, leit´a að jólagjöf.
Það er spenn, spenn, spennandi, að spæn´ um allan bæ,
og spá í allt sem ég get gefið þér.
Í geð, geð, geðveikum, spanjólagír,
svo gaman er að vera til.
Við dembum okkur kát og hress
JÓL
Í dúndur jólastress
JÓL
Þó að allt sé eftir nú
eigum ég og þú, saman geðveik jól
Við dembum okkur kát og hress
JÓL
Í dúndur jólastress
JÓL
Þó að allt sé eftir nú
eigum ég og þú saman geðveik jól.
Þó að allt sé eftir nú
eigum ég og þú saman geðveik jól.
www.gedveikjol.is
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 29. nóvember 2014
Óveðrið um helgina í beinni - Prófaðu að fikta...!
Hér sést hvernig vindar blása við yfirborð jarðar og í flughæð millilandaflugvéla. Kemur þú auga á óveðrið sem verður yfir landinu um helgina, mest seinnipart sunnudags? Myndirnar, sem eru ættaðar frá öfurtölvum (supercomputer), ættu að vera nokkurn vegin í rauntíma, en þær uppfærast á 3ja tíma fresti. Nú er um að gera að fikta aðeins: Prófið að benda á Ísland með músinni og dragið til hliðar. Prófið krækjurnar neðst á síðunni. Fylgist með annað slagið meðan óveðrið nálgast og gengur yfir.
Vindur við yfirborð jarðar.
**
Skotvindur (röst, jet stream) í um það bil 10km (250 hPa) hæð
http://earth.nullschool.net/about.html
https://www.facebook.com/EarthWindMap
|
Spaugilegt | Breytt 17.1.2016 kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 5. október 2013
Neyðarkall frá bandarísku veðurþjónustunni falið í veðurskeyti...
Neyðakall var falið í veðurfréttum NOAA National Weather Service i gær 4. október, en eins og flestir vita þá fá margir ríkisstarfsmenn engin laun um þessar mundir í Bandaríkjunum... Prófið að lesa lóðrétt niður í rauða rammanum á myndinni. PLEASE PAY US stendur þar. Varla er þetta tilviljun. Hægt er að sjá allt skeytið hér:
|
http://governmentshutdown.noaa.gov
Spaugilegt | Breytt 11.10.2013 kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 20. september 2013
Er orðið "samheitalyf" rökrétt myndað? - Væri ekki "jafngildislyf" réttara...?
"Samheitalyf er lyf sem er jafngilt og frumlyfið sem það er borið saman við. Það hefur sama virka innihaldsefnið og í sama magni"
Þannig er þessum lyfjum lýst á vef Actavis. Líklega þekkja flestallir nafnið sem þessi lyf hafa, enda er maður nánast alltaf spurður í apótekinu hvort maður sætti sig við að fá samheitalyf í stað þess sem ávísað er.
Þetta eru sem sagt lyf sem hafa sömu virkni og frumlyfið, en heita ekki það sama. Hvernig er þá hægt að kalla þannig lyf samheitalyf? Það skil ég ekki. Samheitalyf um lyf sem alls ekki heita það sama? Humm...?
Væri ekki réttara að kalla þessa tegund lyfja til dæmis samvirknilyf, jafngildislyf, eða eitthvað í þeim dúr ...? Þetta eru jú lyf sem eru jafngild og hafa sömu virkni.
Skyldi ég vera einn um að finnast orðið "samheitalyf" undarlegt í þessu sambandi?
Skilgreining World Health Organization: "A generic drug is a pharmaceutical product, usually intended to be interchangeable with an innovator product, that is manufactured without a licence from the innovator company and marketed after the expiry date of the patent or other exclusive rights". "Generic drug" þýðir beinlínis "almennt lyf", en það segir ósköp lítið. |
Byggja fyrir 25 milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 11.10.2013 kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 9. mars 2013
Verður sólblettahámarkið nú tvítoppa...?
Sólin kemur sífellt á óvart. Að mörgu leyti hefur hegðun hennar verið óvenjuleg undanfarið. Sólblettahámarkið (númer 24) ætlar að verða það lægsta í 100 ár og svo getur farið að toppurinn verði tvöfaldur.
Tvöfaldur toppur stafar af því að norðurhvel sólar og suðurhvel ná ekki hámarki í fjölda sólbletta samtímis. Nú gæti svo farið að hámarkið á suðurhveli verði seinna á ferðinni og að hámarkinu á norðurhveli hafi þegar verið náð. Hvers vegna telja menn að toppurinn geti orðið tvöfaldur? Því hafði verið spáð að hámarkinu yrði náð í maí, þ.e. eftir tvo mánuði. Ef við skoðum myndina hér að ofan, þá kom skammvinnur toppur fyrir rúmu ári, en síðan dalaði virknin aftur. Er annar svipaður toppur væntanlegur á næstu mánuðum? Ef við skoðum vinstri hluta myndarinnar, þá sjáum við að hámark sólsveiflunnar um síðustu aldamót var einmitt með tveim toppum og lægð á milli. Einhvern vegin þannig gætum við séð á næstunni í sólbletthámarkinu sem nú stendur yfir. Á myndinni hér fyrir ofan (Hathaway / NASA mars 2013: "Solar Cycle Prediction") er spáð sólblettatölu 67 sem er ámóta og hámarkið árið 1906, en þá var sólblettatalan 64. Á annarri vefsíðu NASA "Solar Cycle Update: Twin Peaks?" getur Dean Pesnell sér þess til að hámarkið verði tvítoppa og þaðan er eftirfarandi myndband fengið að láni. Hathaway spáir sólblettatölu 67. Pesnell spáir hærri sólblettatölu. Hver verður reyndin? Jafnvel þó sólsveiflan sé í hámarki er óvissan nokkur. Spennandi .
Þetta var sólblettahámark númer 24. Við hverju má búast af sólblettahámarki númer 25 sem verður væntanlega eftir um áratug? Það veit auðvitað enginn, en menn eru auðvitað byrjaðir að spá. Verður toppurinn miklu lægri en nú? Mönnum hefur alltaf gengið illa að spá um framtíðina, en vísbendingar um að svo verði eru nokkrar.
Eins og sést á þessum samanburði, þá er núverandi sólsveifla 24 mun minni en sólsveiflur 21, 22 og 23. Myndin uppfærist sjálfkrafa annað slagið.
|
Fersk mynd af sólinni í dag. Ekki er mikið um að vera i hámarki sólsveiflunnar.
Þetta er beintengd mynd sem uppfærist sjálfkrafa nokkrum sinnum á dag.
Dagsetningu og tíma ætti að vera hægt að sjá í horninu neðst til vinstri,
en sjá má mynd í fullri stærð með því að smella á þessa krækju:
http://sdo.gsfc.nasa.gov/assets/img/latest/latest_2048_HMIIC.jpg
Síðan er hægt að stækka myndina enn meir með því að smella á hana.
Þá sést textinn mjög vel og einnig sólblettirnir.
Fjöldi splunkunýrra mynda: http://sdo.gsfc.nasa.gov/data/
Áhrif sólar á norðurljósin: Norðurljósaspá.
Spaugilegt | Breytt 11.4.2013 kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sunnudagur, 16. desember 2012
NASA fjallar um væntanlegan heimsendi - Myndband...
Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum
að heimurinn á að farast á vetrarsólstöðum í ár.
En er það ekki bara bull?
NASA hefur séð ástæðu til að gera myndband um málið.
Vefsíða NASA um heimsendinn:
Why the World Didn't End Yesterday
- - -
Hér er vefsíða fyrir þá sem trúa á heimsendi:
Spaugilegt | Breytt 17.12.2012 kl. 07:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 5. september 2012
Hafísinn á norðurslóðum: Stórfurðuleg hegðun...
Málin hafa tekið mjög óvenjulega stefnu eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.
Vægt til orða tekið þá er þetta alveg furðuleg hegðun svo ekki sé meira sagt.
Hvað er eiginlega á seyði?
Er náttúran alveg gengin af göflunum eða er það bara þessi blessaða baugalín?
Heimild: Hér
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 07:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Ginnungagap
Ýmislegt
Loftslag
Teljari
Álverð
Sólin í dag:
(Smella á mynd)
.
Olíuverðið í dag:
Nýjustu færslur
- Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir ...
- Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fen...
- Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 19% meira fylgi en Samfylki...
- Bjarni Sigurðsson harmonikkusnillingur frá Geysi. Fáein orð...
- Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.12.): 5
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 69
- Frá upphafi: 764866
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 39
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Tenglar
Ýmsar vefsíður
- Efnisyfirlit pistla
- Lofthiti - Sjávarstaða - Hafís - Sólvirkni... Beintengdir ferlar
- Club du Soleil Greinar um samaspil sólar og veðurfars
- Stjörnufræðivefurinn
- Astronomy Picture of the Day
- Climate4you
- Watts Up With That?
- World Climate Report
- CO2 Science
- The Reference Frame
- Climate-Audit
- ICECAP
- The Air Went
- Science Sceptical Blog
- Roy Spencer
- Friends of Sience
- Prometheus
- Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? (2003) Vefsíða ÁHB
- Gróðurhúsaáhrif eða eðlilegar sveiflur í virkni sólar? (Grein í Lesbók Mbl. 20. júní 1998) Höfundur Ágúst H. Bjarnason
- Er jörðin að hitna?-Ekki er allt sem sýnist (1998) Vefsíða ÁHB
Uppskriftir
Ýmsar mataruppskriftir
Myndaalbúm
Bloggvinir
- majab
- ragu
- amadeus
- andres08
- apalsson
- asabjorg
- askja
- astromix
- baldher
- biggibraga
- bjarkib
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- bjorn-geir
- blindur
- bofs
- brandarar
- daliaa
- darwin
- duddi9
- ea
- egillsv
- einari
- einarstrand
- elinora
- elvira
- emilhannes
- esv
- eyjapeyji
- fhg
- finder
- finnur
- fjarki
- flinston
- frisk
- gattin
- geiragustsson
- gillimann
- gretaro
- gthg
- gudmbjo
- gudni-is
- gummibraga
- gun
- gutti
- haddi9001
- halldorjonsson
- halldors
- hlini
- hof
- hordurhalldorsson
- hreinsamviska
- hronnsig
- hugdettan
- icekeiko
- ingibjorgelsa
- jakobbjornsson
- jakobk
- johannesthor
- johnnyboy99
- jonaa
- jonasgunnar
- jonmagnusson
- jonpallv
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- karljg
- katrinsnaeholm
- kikka
- kje
- klarak
- kolbrunb
- krissiblo
- ksh
- kt
- lehamzdr
- liljabolla
- lillagud
- lindalea
- lucas
- maeglika
- maggij
- maggiraggi
- marinomm
- martasmarta
- marzibil
- mberg
- midborg
- minos
- morgunbladid
- mosi
- mullis
- naflaskodun
- nimbus
- nosejob
- omarbjarki
- ormurormur
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- photo
- possi
- prakkarinn
- raggibjarna
- rattati
- ravenyonaz
- redlion
- rs1600
- rynir
- saemi7
- sesseljamaria
- sigfus
- sigurgeirorri
- sjalfstaedi
- sjerasigvaldi
- skari60
- skulablogg
- sleggjudomarinn
- stebbix
- steinibriem
- steinnhaf
- stinajohanns
- stjornuskodun
- storibjor
- straitjacket
- summi
- tannibowie
- thil
- thjodarskutan
- throsturg
- toro
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- valdinn
- vefritid
- vey
- vidhorf
- vig
- visindin
- vulkan
- kristjan9
- arkimedes
- kliddi
- eliasbe
Eldri færslur
- Febrúar 2023
- Janúar 2019
- Maí 2018
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði