Bloggfćrslur mánađarins, desember 2007

Um áramót reikar hugurinn víđa...

Flugeldar

 

Auđvitađ reikar hugurinn víđa um áramót. Eins konar uppgjör á sér stađ. Mađur verđur jafnvel örlítiđ meyr og tilfinningarnar brjótast fram. Fyrst og fremst er ţakklćti efst í huga. Áriđ hefur veriđ gćfuríkt og ánćgjulegt, ţannig ađ ekki er hćgt annađ en vera glađur og ţakklátur.

Ég ćtla ađ einskorđa ţenna pistil viđ kynni mín af bloggheiminum á liđnu ári, enda er sá heimur mjög sérstakur. Ţađ tekur smá tíma ađ lćra ađ fóta sig í ţessum hálfgerđa sýndarheimi og kynnast innviđum hans, en ekki líđur á löngu áđur en mađur er farinn ađ vera heimavanur og óragur viđ ađ sýna sig og sjá ađra. Sjálfstraustiđ vex.

Í bloggheiminum fara fram fjörugar umrćđur. Stundum fullar af gáska og fjöri, en oft er fjallađ um mikilvćg málefni, stundum svo vel ađ rödd okkar berst út fyrir virkisveggi bloggheima. Ţá er virkilega tekiđ eftir ţví sem viđ höfum til málanna ađ leggja. Hvers vegna, jú hér fara fram miklar og rökfastar umrćđur um bókstaflega allt sem viđkemur mannlegum samskiptum, listum, stjórnmálum, tćkni og trúmálum. Líklega er ekkert okkur óviđkomandi. Gagnkvćm virđing og samstađa ríkir milli íbúa bloggheima. Ţar eru allir jafnir.

Auđvitađ er mađur ekki alltaf sammála öllum, en bloggsamskiptin krefjast ţess oft ađ mađur beiti gagnrýnni hugsun, finni rök og reyni ađ beita ţeim. Í pistlaskrifum reynir á öguđ og vönduđ vinnubrögđ. Ţar er gott ađ hafa góđar fyrirmyndir og vera sífellt ađ reyna ađ bćta sig. Sífellt ađ lćra eitthvađ nýtt. Ţegar upp er stađiđ erum viđ öll sigurvegarar.

Í bloggheiminum hef ég eignast vini. Jafnvel mjög góđa. Gömul kynni hafa rifjast upp og stofnađ hefur veriđ til nýrra. Hér hef ég kynnst einstöku fólki.

Ţađ sem mér er minnisstćđast úr heimi bloggsins á liđnu ári er ţátttaka mín í Leshringnum og samneyti viđ góđa lesvini sem venja komur sína á Martas Blog Café. Ţar hef ég kynnst góđu fólki og átt margar ánćgjulegar stundir viđ lestur góđra bóka og spjall um ritverk og höfunda ţeirra, sögusviđ og ritstíl.

 

Ég óska öllum bloggvinum mínum og fjölskyldum ţeirra árs og friđar.
Ţakka fyrir ánćgjuleg samskipti á liđnu ári.
 
Gleđilegt ár Wizard

 


Himnaríki og helvíti

Jón KalmanEkki er ćtlunin ađ fjalla um trúmál í ţessum pistli, heldur bókina Himnaríki og helvíti eftir Jón Kalman Stefánsson. Bókina sem var kjörin besta íslenska skáldsagan áriđ 2007 af bóksölum.

Ég las bókina um jólin og er ţetta ein allra magnađasta bók sem ég hef lesiđ. Ég hef sjaldan lifađ mig inn í skáldsögu eins og undanfarna daga. Bókin beinlínis dró mig inn á sögusviđiđ og leiđ mér stundum eins og ég vćri viđstaddur. Jafnvel um borđ í sexćringnum fann ég fyrir nístandi kuldanum. Ţetta er bókin ţar sem ljóđ í Paradísarmissi er örlagavaldurinn mikli, og einn stakkur skilur milli lífs og dauđa.

Textinn er einstaklega myndrćnn og meitlađur. Persónulýsingar skýrar, og síđast en ekki síst er atburđarásin ţannig ađ bókin heldur manni svo sannarlega viđ lesturinn. Bók sem vissulega er hćgt ađ mćla međ.

 

Í kynningu forlagsins segir:

"Sagan gerist fyrir meira en hundrađ árum, fyrir vestan, inni í firđi, á milli hárra fjalla, eiginlega á botni heimsins, ţar sem sjórinn verđur stundum svo gćfur ađ ţađ er hćgt ađ fara niđur í fjöru til ađ strjúka honum.

Strákurinn og Bárđur róa um nótt á sexćringi út á víđáttur Djúpsins ađ leggja lóđir. Ţar bíđa ţeir fram á brothćttan morgun eftir fiskinum sem hefur synt óbreyttur um hafiđ í 120 milljón ár. Ţótt peysurnar séu vel ţćfđar smýgur heimskautavindur auđveldlega í gegn. Ţađ er stutt á milli lífs og dauđa, eiginlega bara ein flík, einn stakkur.

Jón Kalman Stefánsson hefur ţrisvar sinnum veriđ tilnefndur til Bókmenntaverđlauna Norđurlanda: Fyrst fyrir bókina Sumariđ bak viđ brekkuna, svo Ýmislegt um risafurur og tímann og nú síđast fyrir Sumarljós og svo kemur nóttin, sem hlaut Íslensku bókmenntaverđlaunin áriđ 2005".

 

Bloggaranum fannst ţađ ánćgjulegt ađ langafi hans kom viđ sögu framarlega í bókinni, en á bls. 19 er minnst á kennslubók Jóns Ólafssonar í enskri tungu. Um enskukver Jóns "English made easy" og "Vesturfara túlkur" er fjallađ aftarlega í grein Steinunnar Einarsdóttur "Ţegar Íslendingar fóru ađ lćra ensku". Svo er ţađ spurning hvort "Lárus sýslumađur" sem kemur oftar en einu sinni fyrir  í sögunni sé Lárus H. Bjarnason sem var um skeiđ bćjarfógeti og sýslumađur í Ísafjarđarsýslu, ţ.e. afabróđir bloggarans, en ţetta eru nú bara persónulegar hugrenningar sem vöknuđu viđ lestur ţessarar ágćtu bókar.

 

Á vefsíđu útgáfufyrirtćkisins Bjarts er skýrt frá nýlegu bréfi Gallimard útgáfunnar:

Ţar segir svo m.a. í lauslegri ţýđingu (leturbreytingar eru mínar):

Ţađ er mér mikil heiđur, fyrirgefiđ  mikil, mikill  heiđur, ađ geta loks sagt ykkur ađ viđ hjá Gallimard höfum ákveđiđ ađ kaupa ţýđingarréttinn á bók Jóns Kalmans Stefanssonar, Himnaríki og helvíti.  Jon Kalman er höfundur sem á heima á útgáfulista okkar. Hann er frábćr viđbót fyrir okkur, fyrirtćki sem getur státađ af ađ hafa gefiđ út helstu risa heimsbókmenntanna. Nú er komiđ ađ Jóni Kalman Stefánssyni. Ţegar viđ hjá Gallimard tökum höfund um borđ  ţá er ţađ til ađ fara í langa og skemmtilega siglingu. Útgáfan okkar er eins og glćst listisnekkja. Viđ siglum ekki í höfn fyrr en viđ höfum látiđ alla lesandi borgara Frakklands og helst allan heiminn  vita ađ Jon Kalman er eitt af stćrstu nöfnum evrópskra nútímabókmenntanna.

 

Ţađ er eitthvađ mikiđ ađ gerast!  Gaman verđur ađ fylgjast međ Jóni Kalman á nćstu árum.

Hver veit nema Leshringurinn taki fyrir einhverja af bókum Jóns Kalman í framtíđinni? Ţađ vćri áhugavert.


Ljúfir tónar: Alison Balsom trompetleikari

 

 Eru til ljúfari tónar?    Er til betri trompetleikari en Alison Balsom?

Hlustiđ ađ minnsta kosti á Paganini Caprice No.4

 ---

 
Someone to watch over me.

 


Légende.

  

 
Paganini Caprice No. 24  (Alveg magnađ).

 



Bach Works for Trumpet.
  
 

Caprice - The Album (Kynning á geisladisknum).
 
 
 
Vefsíđa snillingsins:   www.alisonbalsom.com 
 
 
 

Stćrsti stjörnusjónauki landsins og Stjörnuskođunarfélagiđ

Stjörnuskođunarfélag Seltjarnarness er eina félag áhugamanna um stjörnuskođun og stjörnufrćđi hér á landi og eru félagar í ţví um 150 talsins. Ađsetur félagsins er í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi. Uppi á ţaki skólans er hvolfţak sem hýsir ađalsjónauka félagsins. Hann er af gerđinni JMI NGT-18 og er spegill hans 46 cm í ţvermál.

NGT-18 (sjá mynd) er 18 tommu Newtonsspegilssjónauki frá bandaríska sjónaukaframleiđandanum Jim’s Mobile Incorporated. Ţetta er stćrsti og fullkomnasti stjörnusjónauki landsins en brćđurnir og velunnarar félagsins, ţeir Ágúst og Sveinn Valfells, gáfu Stjörnuskođunarfélaginu gripinn. Međ ţessari höfđinglegu gjöf vildu ţeir Ágúst og Sveinn efla áhuga almennings á stjarnvísindum og stjörnuskođun. Á sama tíma vildu ţeir brćđur minnast systur sinnar dr. Sigríđi Valfells málfrćđings, sem lést haustiđ 1998, sextug ađ aldri.

Félagiđ á einnig tvo ađra stjörnusjónauka. Annars vegar 10 tommu Schmidt-Cassegrain sjónauka frá Meade og hins vegar 14 tommu Schmidt-Cassegrain sjónauka frá Celestron. Sá hinn síđari er fyrsti sjónauki félagsins.

Saga Stjörnuskođunarfélagsins nćr yfir rúm ţrjátíu ár en félagiđ var stofnađ ţann 11. mars áriđ 1976 og voru stofnfélagar tuttugu talsins. Fyrsti formađur félagsins var Ţorsteinn Sćmundsson stjörnufrćđingur. Núverandi stjórn Stjörnuskođunarfélagsins skipa

  • Sćvar Helgi Bragason, formađur
  • Grétar Örn Ómarsson, ritari
  • Kristján Ţór Ţorvaldsson, gjaldkeri

Stjörnuskođunarfélagiđ er opiđ öllum áhugamönnum um stjörnuskođun og stjörnufrćđi. Undanfarin ár hefur félagsgjaldiđ veriđ 2.000,- kr. á ári. Á hverju ári stendur félagiđ fyrir margvíslegum spennandi uppákomum og ber ţar helst ađ nefna námskeiđ í stjörnuskođun, útgáfu fréttabréfa, sólskođun og stjörnuskođun fyrir almenning auk ýmiss annars.

Ţessar upplýsingar um félagiđ eru fengnar ađ láni af vefsíđu ţess:  www.astro.is

Vefsíđan er mjög áhugaverđ og er ţar ađ finna ítarlegar upplýsingar um félagiđ, ađstöđu ţess, sjónauka og starfssemi.

Bloggarinn hefur veriđ um árabil félagsmađur í Stjörnuskođunarfélaginu og setiđ í stjórn ţess um tíma.  Allir sem hafa ánćgju af ţví dást ađ stjörnuhimninum ćttu ađ íhuga ţađ vel ađ gerast félagar. Ţađ er vel ţess virđi.

Myndina tók bloggarinn skömmu eftir ađ sjónaukanum hafđi veriđ komiđ fyrir í turninum, en síđan hefur ađstađan ţar veriđ endurbćtt verulega.

 

Tenglar: 

Stjörnuskođunarfélag Seltjarnarness: www.astro.is

Stjörnufrćđivefurinn: www.stjornuskodun.is


Ballett í háloftunum, Svetlana Kapanina

 

Svatlana Kapanina

 

Ţessi pistill er tileinkađur öllum hinum fjölmörgu konum sem láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Konum sem ţora, vilja og geta. Konum sem eru oft fremri karlmönnum.

Ein ţessara hugrökku kvenna er Svetlana Kapanina sem lćtur sig ekki muna um ađ dansa ballett í háloftunum. og gerir ţađ betur en flestir ađrir.   

Hér fyrir neđan eru fáein myndbönd ţar sem stúlkan sýnir listir sýnar.  Segiđ svo ađ ţetta sé bara fyrir stráka!

 


Svetlana Kapanina - the best female pilot of all times.
Eftir einnar mínútu Bla...Bla... á rússnesku byrjar balliđ!
Takiđ eftir danssporunum á jörđu niđri Halo

  

 

 ( Skýrari og stćrri mynd hér )

 
 
 

 Ţađ er nóg ađ horfa og hlusta

 

 
Međ rússnesku tali
  
 
 
Skrifađ í skýin. Ég sá ekki betur en Svetlana teiknađi Heart í háloftunum.
 


Meira um konur sem ţora:

Af bleikum og ekkibleikum.  Áhugaverđur pistill Mörtu B. Helgadóttur um konur sem ţora í lífi og starfi.


Heimurinn um nótt

 


 

Ţessi ofurfallega mynd er af nýju vefsíđunni The World at Night (TWAN), en ţar er ađ finna safn ljósmynda sem teknar eru ađ nóttu til.  Margar ţeirra einstaklega fallegar. Myndin hér fyrir ofan er fengin ađ láni ţar, en hún prýđir einnig vefsíđuna Astronomy Picture of the Day (APOD) í dag, jóladag. (Smelliđ tvisvar á myndina til ađ sjá hana í fullri stćrđ).

Myndin er auđvitađ af jólastjörnunni Mars, en ţar til hćgri er stjörnumerkiđ Orion. Rauđa stjarnan í miđjunni er Betelgeuse, en Orion stjörnuţokan er rauđleit hćgra megin á myndinni, gimsteinninn í sverđinu neđan viđ belti Orions, veiđimannsins mikla. Ljósmyndari er  Wally Pacholka.

 

Gleđilega hátíđ.

Fáeinar nćturmyndir eftir bloggarann hér 


Vetrarsólstöđur, hćnufetiđ, tíminn og jólakveđja


Enn og aftur er sólin lćgst á lofti og nýtt ár hefur göngu sína innan fárra daga. Enn og aftur hefur jörđin nýja hringferđ um sólina.  
 

Á morgun fer daginn ađ lengja aftur um eitt hćnufet. Hve stórt er ţetta hćnufet? Ţví er svarađ í Almanaki Háskólans. Fyrsta skref hćnunnar er ađeins 9 sekúndur, síđan 27 sek, svo 44 sek, ... og ekki líđur á löngu áđur en voriđ er komiđ.

Tempus fugit;   tíminn líđur!      

Aldrei virđist vera nćgur tími.


Skyldi vísindamönnum einhvern tíman takast ađ hćgja á tímanum?  - Varla, og ţví verđum viđ bara grípa til okkar ráđa.

Er ekki kominn tími til ađ gefa sér tíma til ađ dást ađ undrum lífsins og náttúrunnar? Gefa sér tíma til ađ lesa góđar bćkur? Gefa sér tíma til ađ sinna hugđarefnum sínum?    -  Gefi mađur sér tíma til ţess, ţá líđur ekki langur tími ţar til manni finnst tíminn líđa hćgar!  Viđ getum gert ţađ sjálf sem vísindamönnum tekst ekki, viđ getum hćgt á tímanum!

anchristmastree

 

Hvađ finnst ţér lesandi góđur. Finnst ţér ţú hafa nćgan tíma til ađ sinna ţínum hugđarefnum, vinum og fjölskyldu?

 

Jólin eru hátíđ ljóss og friđar.
Nú skulum viđ njóta ţess ađ eiga góđar stundir um hátíđarnar.

Ég óska ykkur og fjölskyldum ykkar
gleđilegra jóla.
   
Wizard

 Vetrarsólstöđur eru í ár 22. des. kl. 06.08.

Sjá nýjar myndir í athugasemdum 


2009 verđur ár stjörnufrćđinnar á 400 ára afmćli stjörnusjónaukans

galileo_sustermansÁhugaverđ frétt er í Morgunblađinu í dag. Ţar segir međal annars:

 

Áriđ 2009 verđur alţjóđlegt ár stjörnufrćđinnar samkvćmt tillögu sem Ítalía heimaland Galíleós Galíleís sem samţykkt var á alsherjarţingi Sameinuđu ţjóđanna í gćr.

...

Einar H. Guđmundsson prófessor í stjarneđlisfrćđi viđ Háskóla Íslands er formađur íslensku IYA2009 landsnefnarinnar og tengill hennar viđ alţjóđasambandiđ.

Hann segir af ţessu tilefni:


„Hér á landi verđur haldiđ upp á Alţjóđlegt ár stjörnufrćđinnar 2009 međ margvíslegum hćtti. Međal annars er fyrirhugađ ađ bjóđa almenningi ađ hlýđa á fyrirlestra um ţađ sem efst er á baugi í stjarnvísindum nútímans.

Mönnum mun einnig gefast kostur á frćđslu um stjörnusjónauka og ţátttöku í stjörnuteitum ţar sem stjörnuhiminninn verđur skođađur. Ţá er veriđ ađ vinna úr hugmyndum um samvinnu stjarnvísindamanna og stjörnuáhugamanna viđ kennara og nemendur í skólum landsins.

Einnig er ćtlunin ađ frćđa landsmenn um sögu stjarnvísinda á Íslandi. Ţađ er mikiđ ánćgjuefni ađ Ísland skuli hafa stutt ţessa tillögu á allsherjarţingi Sameinuđu ţjóđanna og ţannig tekiđ undir ţađ viđhorf ađ raunvísindi séu einn af hornsteinum nútíma samfélags."

 

Ţađ rifjast upp ađ fyrir allmörgum árum störfuđum viđ Einar sem sumarmenn á Háloftadeild Raunvísindastofnunar hjá Ţorsteini Sćmundssyni stjörnufrćđingi, ţar sem unniđ var ađ rannsóknum á m.a. norđurljósum og segulsviđi jarđar.

Myndin er af Galíleó Galíleí. 

Krćkjur:

Stjörnuskođunarfélagiđ

Stjörnufrćđivefurinn

Vefsíđa stjörnufrćđiársins 2009 

 

Sjá fréttina í Morgunblađinu:


mbl.is 2009 verđur ár stjörnufrćđinnar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

REI, REI ekki um jólin

Muna ekki allir eftir myndbandinu Orkuveitan heima sem er hér ?   Nú styttist til jóla og menn farnir ađ ná áttum eftir hremmingar haustsins.   Hér er nýtt myndband REI, REI ekki um jólin.


Hafa hljóđiđ á

Jólastjarnan í ár er Mars. Eins og gyllt jólakúla.

 

Mars

 Mars - (Smella ţrisvar á mynd til ađ sjá stóra)

Mars er í dag 18. desember nćst jörđu, en á ađfangadagskvöld 24. desember verđur Mars nákvćmlega andspćnis sólu miđađ viđ jörđina og bjartasta stjarnan á kvöldhimninum.  Bjartari en Síríus.  Sannkölluđ jólastjarna.

 

Auđvelt er ađ koma auga á Mars. Reikistjarnan er mjög björt og falleg á norđ-austur himninum snemma á kvöldin. Nánast eins og gulllituđ jólakúla. Bjartasta kvöldstjarnan međ birtustig mínus 1,6.  Ađeins í 88 milljón kílómetra fjarlćgđ í dag. Ţađ verđur ekki fyrr en áriđ 2016 sem Mars verđur jafn nálćgur.  Venus er aftur á móti lang bjartasta stjarnan ađ morgni dags međ birtustig mínus 4,1.   

 

Gleymiđ ekki ađ líta til himins ţessa dagana ef vel viđrar til stjörnuskođunar.  Stríđsguđinn Mars er ţar í öllu sínu veldi á kvöldin, en ástargyđjan Venus er fallegust ađ morgni.  Skyldi Mars vera genginn til náđa ţegar Venus vaknar? Reyniđ ađ finna skötuhjúin saman snemma morguns. Hvađ ćtli ţau séu ađ bralla? Hvađ er Satúrnus guđ landbúnađarins ađ gera mitt á milli ţeirra á himinhvelfingunni?  Undir fallegum stjörnuhimni fer hugurinn oft á flug, enda er fátt fegurra en stjörnur himinsins ţegar borgarljósin byrgja ekki sýn.

 

 

 
 
 
ares_m
 
 

Nćsta síđa »

Höfundur

Ágúst H Bjarnason
Ágúst H Bjarnason

Verkfr. hjá Verkís.
agbjarn-hjá-gmail.com

Audiatur et altera pars

Aðeins málefnalegar athugasemdir, sem eiga ótvíætt við efni viðkomandi pistils, og skrifaðar án skætings og neikvæðni í garð annarra, og að jafnaði undir fullu nafni, verða birtar. 

Um bloggiđ

Ginnungagap

Ýmislegt

Loftslag

Click to get your own widget

Teljari

free counters

Álverđ

http://metalprices.com/PubCharts/PublicCharts.aspx?metal=al&type=L&weight=t&days=12&size=M&bg=&cs=1011&cid=0

Sólin í dag:

(Smella á mynd)

.

Olíuverđiđ í dag:

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Eldri fćrslur

Apríl 2024
S M Ţ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband