Sunnudagur, 15. mars 2015
Minningar frá sólmyrkvanum 1954 og sólmyrkvinn 2015...
30. júní árið 1954 var almyrkvi á sólu sem sást mjög vel syðst á Suðurlandi, og einna best nærri Dyrhólaey. Þar var almyrkvi, en aðeins deildarmyrkvi í Reykjavík. Ég var svo lánsamur að fá að fara með frændfólki að Dyrhólaey og njóta atburðarins í einstaklega góðu veðri. Þar var kominn saman fjöldi fólks og þar á meðal fjölmargir útlendingar, því þetta var einn besti staðurinn til að njóta fyrirbærisins. Skyndilega mátti sjá smá sneið á jaðar sólar þegar máninn byrjaði að mjaka sér fram fyrir hana. Margir voru með rafsuðugler eða svarta filmu til að deyfa skært sólarljósið og nokkrir með sótaða glerplötu, en vafalítið hafa margir fengið meiri birtu í augun en hollt getur talist. Smám saman stækkaði skugginn af tunglinu og bráðlega hafði hann næstum hulið alla sólina. Nú dimmdi óðum og fuglarnir í bjarginu þögnuðu. Þessi nótt sem nú skall á um hásumarið kom þeim greinilega á óvart. Spennan óx og allir störðu þögulir til himins. Nokkru síðar huldi máninn nákvæmlega alla sólina og sást einungis bjartur hringur á himninum. Almyrkvi á sólu. Undrunarhljóð hljómuðu. Almyrkvinn varði ekki lengi. Skyndilega sást ofurskært tindrandi ljós við jaðar tunglsins. Þetta var sólin að gægjast fram. Máninn og sólin mynduðu nú hinn fræga demantshring sem aðeins sést við almyrkva. Enn meiri undrunarhljóð... (Myndin efst er af svona demantshring). Smám saman sást meira af sólinni og fuglarnir tóku gleði sína aftur þegar birti. Mannfjöldinn leyndi ekki gleði sinni. Þetta yrði ógleymanlegt.
Vafalítið hefur þessi upplifun haft þau áhrif á guttann litla að hann fékk áhuga á himingeimnum, áhuga sem enn er fyrir hendi. Hann hafði orðið vitni að mögnuðum atburði sem allt of fáir fá tækifæri til að upplifa.
Fólk fylgist með almyrkva við Dyrhólaey í gegnum svört spjöld árið 1954 Mynd úr Ljósmyndasafni Ólafs K. Magnússonar / âMorgunblaðsins. Ólafur K. Magnússon
Ég á ekki neina ljósmynd frá þessum atburði, en nokkrar sem ég hef tekið af öðrum deildarmyrkvum:
|
Myndina tók ég af deildarmyrkvanum 1999. Myndin er tekin í gegn um rafsuðugler.
Meira hér: Sólmyrkvinn að morgni 1. ágúst 2008
Deildarmyrkvi á sólu. Myndin tekin 1. ágúst 2008 nærri Gullfossi.
Meira hér: Sólmyrkvinn 2008
Sólmyrkvi? Tja, þetta er reyndar Venus sem skyggir á hluta sólarinnar.
Myndin er tekin 11. júní 2004 klukkan 07:45.
Meira hér: Þverganga Venusar
Þverganga Venusar 5. júní 2012.
Fleiri myndir hér: Myndir frá þvergöngu Venusar
Ekki beinlínis sólmyrkvi :-)
--- --- ---
Sólmyrkvinn að morgni föstudagsins 20. mars 2015
Þetta verður ekki almyrkvi eins og árið 1954,
en tunglið mun þó ná að hylja 97% sólskífunnar.
Á Stjörnufræðivefnum eru frábær myndbönd sem sýna vel hvernig sólmyrkvinn
gæti lítið út frá nokkrum stöðum á Íslandi. Hér er eitt þeirra sem á við Reykjavík.
Meira hér: http://www.stjornufraedi.is/solkerfid/solin/solmyrkvi/solmyrkvi-20.-mars-2015/
Sólmyrkvi 20. mars 2015 úr Reykjavík from Stjörnufræðivefurinn on Vimeo.
***
Vantar þig sólmyrkvagleraugu?
Stjörnuskoðunarfélagið verður með sólmyrkvagleraugun til sölu í
Smáralind helgina 14.-15. mars.
Gleraugun kosta 500 kr. stykkið og allur ágóði
verður notaður í fleiri fræðsluverkefni.
Krækjur:
Stjörnufræðivefurinn um sólmyrkvann 2015
Sólmyrkvinn að morgni 1. ágúst 2008.
Sólmyrkvinn í dag. Myndir. (2008)
Tunglmyrkvinn aðfararnótt fimmtudagsins 21. febrúar 2008
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness
Jörðin, sólin bak við tunglið og vetrarbrautin
Einstæð mynd af almyrkva | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Vísindi og fræði | Aukaflokkar: Dægurmál, Menning og listir, Stjórnmál og samfélag | Breytt 8.4.2024 kl. 12:52 | Facebook
Um bloggið
Ginnungagap
Ýmislegt
Loftslag
Teljari
Álverð
Sólin í dag:
(Smella á mynd)
.
Olíuverðið í dag:
Nýjustu færslur
- Kínverskur loftbelgur yfir Ameríku, og Amerískur belgur yfir ...
- Vísindavefurinn: Getum við seinkað klukkunni á Íslandi og fen...
- Sjálfstæðisflokkurinn með tæplega 19% meira fylgi en Samfylki...
- Bjarni Sigurðsson harmonikkusnillingur frá Geysi. Fáein orð...
- Hvers vegna valdi Apple ekki Ísland fyrir gagnaver...?
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.12.): 13
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 75
- Frá upphafi: 764772
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 48
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Tenglar
Tenglar
Ýmsar vefsíður
- Efnisyfirlit pistla
- Lofthiti - Sjávarstaða - Hafís - Sólvirkni... Beintengdir ferlar
- Club du Soleil Greinar um samaspil sólar og veðurfars
- Stjörnufræðivefurinn
- Astronomy Picture of the Day
- Climate4you
- Watts Up With That?
- World Climate Report
- CO2 Science
- The Reference Frame
- Climate-Audit
- ICECAP
- The Air Went
- Science Sceptical Blog
- Roy Spencer
- Friends of Sience
- Prometheus
- Öldur aldanna. Sjaldan er ein báran stök - einnig í veðurfari? (2003) Vefsíða ÁHB
- Gróðurhúsaáhrif eða eðlilegar sveiflur í virkni sólar? (Grein í Lesbók Mbl. 20. júní 1998) Höfundur Ágúst H. Bjarnason
- Er jörðin að hitna?-Ekki er allt sem sýnist (1998) Vefsíða ÁHB
Uppskriftir
Ýmsar mataruppskriftir
Myndaalbúm
Bloggvinir
- majab
- ragu
- amadeus
- andres08
- apalsson
- asabjorg
- askja
- astromix
- baldher
- biggibraga
- bjarkib
- bjarnijonsson
- bjarnimax
- bjorn-geir
- blindur
- bofs
- brandarar
- daliaa
- darwin
- duddi9
- ea
- egillsv
- einari
- einarstrand
- elinora
- elvira
- emilhannes
- esv
- eyjapeyji
- fhg
- finder
- finnur
- fjarki
- flinston
- frisk
- gattin
- geiragustsson
- gillimann
- gretaro
- gthg
- gudmbjo
- gudni-is
- gummibraga
- gun
- gutti
- haddi9001
- halldorjonsson
- halldors
- hlini
- hof
- hordurhalldorsson
- hreinsamviska
- hronnsig
- hugdettan
- icekeiko
- ingibjorgelsa
- jakobbjornsson
- jakobk
- johannesthor
- johnnyboy99
- jonaa
- jonasgunnar
- jonmagnusson
- jonpallv
- jonthorolafsson
- juliusvalsson
- karljg
- katrinsnaeholm
- kikka
- kje
- klarak
- kolbrunb
- krissiblo
- ksh
- kt
- lehamzdr
- liljabolla
- lillagud
- lindalea
- lucas
- maeglika
- maggij
- maggiraggi
- marinomm
- martasmarta
- marzibil
- mberg
- midborg
- minos
- morgunbladid
- mosi
- mullis
- naflaskodun
- nimbus
- nosejob
- omarbjarki
- ormurormur
- palmig
- perlaoghvolparnir
- peturmikli
- photo
- possi
- prakkarinn
- raggibjarna
- rattati
- ravenyonaz
- redlion
- rs1600
- rynir
- saemi7
- sesseljamaria
- sigfus
- sigurgeirorri
- sjalfstaedi
- sjerasigvaldi
- skari60
- skulablogg
- sleggjudomarinn
- stebbix
- steinibriem
- steinnhaf
- stinajohanns
- stjornuskodun
- storibjor
- straitjacket
- summi
- tannibowie
- thil
- thjodarskutan
- throsturg
- toro
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- valdinn
- vefritid
- vey
- vidhorf
- vig
- visindin
- vulkan
- kristjan9
- arkimedes
- kliddi
- eliasbe
Eldri færslur
- Febrúar 2023
- Janúar 2019
- Maí 2018
- Júlí 2017
- Maí 2017
- Febrúar 2017
- Janúar 2017
- Nóvember 2016
- Október 2016
- September 2016
- Júlí 2016
- Apríl 2016
- Mars 2016
- Febrúar 2016
- Janúar 2016
- Desember 2015
- Nóvember 2015
- Október 2015
- Ágúst 2015
- Júní 2015
- Maí 2015
- Apríl 2015
- Mars 2015
- Febrúar 2015
- Janúar 2015
- Desember 2014
- Nóvember 2014
- Október 2014
- September 2014
- Ágúst 2014
- Júlí 2014
- Júní 2014
- Maí 2014
- Apríl 2014
- Mars 2014
- Febrúar 2014
- Janúar 2014
- Desember 2013
- Nóvember 2013
- Október 2013
- September 2013
- Ágúst 2013
- Júlí 2013
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- Október 2006
- September 2006
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Evrópumál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Athugasemdir
Skemmtileg frásögn. Ég var í sveit norður í Miðfirði í dal sem heitir vesturárdalur. 12 ára gamall vissi ég ekki hættuna á að horfa beint í sólina og líklega engin af heimilisfólkinu en þarna inn í þessum afdal ríkti ennþá fornöld og til merkis um það þá vorum við að slætti með orf og ljá enda engar vélar á bænum..
Það sem ég man og gleymi aldrei var að við horfðum inn á Tvídægru og það var eins og ég hefði farið í dá en mér leið einkennilega og einhver voru eftirköstin en engin vissi né talaði um þetta og síðan var haldið áfram að slá. Já ég var orðin sláttumaður 12 ára og það skipti máli að vera ekki með rakstrarkonunum.
Valdimar Samúelsson, 16.3.2015 kl. 12:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.